Húnavaka

Þetta sumar er búið að einkennast af fríi eginnlega. Fór í útilegu á Logaland, Galtalæk og er núna á Húnavöku.   Svo eru það Grundarfjarðardaga, Eyjar, Fiskidagurinn mikli og flugeldasýning á Ljósanótt sem bíða á verkefnalistanum….   er kominn með Drög að vinnu í haust en það verður opinberað ef af því verður.

Bestu kveðjur: Kjullibangsi sem var ekki ráðinn bæjarstjóri…….

Laugardagur, júlí 17th, 2010 Blogg Engar athugasemdir

Halló

Kjullibangsi er búinn að vera önnum kafinn síðustu vikurnar. Strandveiðar, Rúntur á Eskifjörð og svo er Árshátíð um helgina.

Fylgist með honum á Facebook :D

Fimmtudagur, júní 17th, 2010 Blogg Engar athugasemdir

Já sæll…

Allt að gerast núna.

Ég er kominn með nýtt áhugamál sem er að spila á gítar en ég Fór Til simma og hann kenndi mér að glamra á þessháttar græju..  Kjallarinn gengur vel og styttist í að maður geti farið að taka allavega herbergið í notkun.

Ég sótti bílinn á verkstæðið í dag og hann er orðinn helvíti vígalegur ný sprautaður og með ný ljós og nýtt grill af 2001 típunni :D

Nú eru að koma Páskar og ég er ekkert búinn  að plana þá neitt en það verður allt að koma í ljós hvað maður gerir.

Enn er ekkert sjóveður þannig að það er ekkert að frétta að því. Nema að núne er ég loksinns orðinn löglegur skipstjóri á bátnum hehehe

Þangað til næst…….   Kjullibangsi

Miðvikudagur, mars 31st, 2010 Blogg Engar athugasemdir

Rigningarblogg

Það er skítaveður í dag. Rok og rigning. Ég vaknaði klukkan átta í morgun og verð að viðurkenna að ég veit ekki af hverju. Enda ekkert hægt að gera… Ég hrinhdi í Hólminn í gær og þeir sögðu að þeir gætu tekið bílinn á Fimmtudaginn en ég þarf að fara með hann í skoðun og svo í bæinn um helgina þannig að þeir fá hann líklega ekki fyrren á Mánudaginn í næstu viku. Þá fær hann loksinns sína andlitsliftingu.

læt fylgja með eitt skikki mynd dagsinns:

Þriðjudagur, mars 9th, 2010 Blogg Engar athugasemdir

Nýtt uppáhald

Í gær var ég að vinna í dyrunum á Kaffi 59 og þar steig á stokk Ultra Mega Technobandið Stefán. ég verð að viðurkenna að þeir komu svo sannarlega skemmtilega á óvart.

Hér er smá sýnishorn af þessu frábæra bandi

Sunnudagur, mars 7th, 2010 Blogg Engar athugasemdir

Dagur 1

Það er rok og rigning í Grundarfirði í dag og ég er búinn að fara til læknis, hringja á Akureyri útaf rúllumálinu, kíkja á óskar og co og þarf næst að fara á löggustöðina.. Í dag hefst kvikmyndahátíðin Northen wave hér í Grindarfirði og er mikið um að vera alla helgina. Það eru böll bæði kvöldin á Kaffi 59 og ég er í dyrunum bæði kvöldin. það er búist við fullu húsi bæði kvöldin enda fullt af fólki að koma og frítt inn.

Nú eru öll gögn klár fyrir atvinnuskírteinið og þarf bara að senda það í siglingastofnun eftir helgi og þá setur maður farið að kalla sig Captain Kjullibangsa.

Næstu helgi er Hjörtur Aron að koma yfir á þennan landshlutann og ég ætla að brenna í bæjarferð og hitta á kappann og prófa að fara níþrí bæ á smá edrúdjamm með honum en hann er víst fallinn á bindindinu greyið..

Ætla ekki að hafa þetta lengra og minni ykkur á að fara í nýskráningu hér til hægri og skrá ykkur sem áskrifendur af síðuni. það er mun þægilegra að mota síðuna þannig

Kveðja. Kjullinangsi.

Föstudagur, mars 5th, 2010 Blogg Ein athugasemd

Velkomin á www.kjullibangsi.is

Þá er þessi síða loksinns komin í gagnið og skelfirinn.is komin til feðra sinna. Ég vona að þessi síða verði líflegri en sú gamla var orðin og þá kemur að ykkur sem kíkja hér inn að láta í ljós ykkar skoðanir á því sem er hér inni og þá hvetja mig í að koma með eithvað nýtt. Ég vona bara að þið hafið gagn og faman af því sem hér er.

Ef þú skráir þig inn hér til hægri (Nýskráning) þá auðveldar það þér að nota síðuna með tilliti til athugasemda og fleira.

Ég vill að allir klappi svo fyrir snillingnum Haraldi Helga sem á allann heiðurinn af uppsetningu vefjarinns

kveðja

Kjullibangsi…  og nú .is :)

Fimmtudagur, mars 4th, 2010 Blogg 2 athugasemdir

Á Kamburinn að fjúka eftir páska?

View Results

Loading ... Loading ...
júlí 2010
Þ Mi Fi L S
« júní    
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031  
Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes